jæja stefni að 100% dag

17 10 2007

ójá og dagurinn er hálfnaður og það gengur vel.  Tönnin er komin í gott lag og nú er bara bjart framundan!!

Sigríður…. ég var með fullt af gulrótum í bílnum á leiðinni…… en engin þeirra rataði í minn maga ;( 

 Fór á vigtina í morgun, átti von á hrikalegri tölu vegna fjarveru við DDV en haldið þið að vigtin hafi ekki bara sagt mér að ég sé búin að léttast um 800 grömm til viðbótar.  Besta mál bara og þó ég hafi borðað eitthvað óhollt og svona, þá er greinilega að granna ég hef haft einhver ítök undanfarnar 3 vikur, enda er ég búin að vera mjög meðvituð um það sem ég er að setja ofan í mig jafnvel þó það sér óhollt.  En í dag er bara “kóld turkí” á hlutina og Danskurinn í heiðri hafður.  Ætla svo að blogga seinna í dag bara fyrir mig til að ég geti lesið um þennan góða dag sem ég ætla að eiga:)

En að öðru…. ég fór í krabbóskoðun í gær……. í ca. 10 sinn sem ég fer í svona skoðun og hingað til alltaf gengið mjög vel…… en mikið var ég reið þegar ég kom út í gær, ég meina…. ég er ég er búin að eiga 3 börn og allt sem því fylgir og það er nú ekkert smá, en aldrei liði illa eftir samskipti við lækna eða ljómæður sem hafa þurft að skoða mig.  Lenti á lækni  sem var svo harðhentur og hreinlega meiddi mig ….. það endaði með því að ég kallaði hann rudda :( og ég kalla nú ekki allt ömmu  mína í þessum efnum!!   Allan daginn í gær og líka í morgun þegar ég vaknaði var ég með svona ótrúlega óþægilega tilfinningu eftir þessa upplifun…. og meðan ég var að keyra heim hugsaði ég mikið um fórnalömb kynferðisafbrota og þeirra líðan……. meina ég hitti þarna lækni sem tók strok úr leghálsinum og þó hann hafi ekki gert mér neitt þannig séð þá fór hann of langt inn á mitt eigið sjálf með því að vera ruddalegur og meiða mig þannig að ég var virkilega reið við hann, þessi tilfinning á þó eftir að dofna á nokkrum dögum……… en fórnarlömb kynferðisbrota fá þessa tilfinningu milljóntrilljónfalt…… og hún hverfur aldrei og lifir alltaf í sálu þeirra!!  Ekki  misskilja mig að ég sé að bera þetta tvennt saman, var bara svo mikið að hugsa þetta þar sem ég sat undir stýri með mitt pínulítið laskaða eigið sjálf…… og út frá því hversu hræðilega fórnarlömbum kynferðisbrota hlýtur að líða þegar þau fá þessa tilfinningu þúsundmilljóntrilljónfalt!!

BBL með sitt eigið sjálf í viðgerð!!





:) andvarp …..:)

15 10 2007

Rótarfyllingæi já ég andvarpa bara í dag….. ekki vegna þess að ég sé eitthvað verulega fúl meira vegna þess að ég var búin að ákveða að eiga 100 % dag í dag….. en þá fer einhver tönn að angra mig og ég get varla borðað.  Greinilega komin með tannrótarbólgu….. einhver taugin í tönninni ekki nennt að lifa lengur….. ætli þetta séu merki um hækkandi aldur…. að mar sé að deyja svona hægt og hægt :)   En allavega ég þarf að skjótast suður til tannsa þannig að ég get átt 100% dag frá og með miðvikudeginum.  Ekki séns að eiga alveg 100 % dag á morgun þar sem ég ætla að keyra til Reykjavíkur í fyrramálið og heim aftur annað kvöld…. samtals milli 11 og 12 tíma akstur samtals!!  En mar er svo sem ekkert óvanur því að keyra svona báðar leiðir samdægurs….:)  Annars hefur mataræðið gengið mun betur undanfarna daga þó það hafi ekki verið 100% þá er það samt í áttina og ég var búin að ákveða 100% dag í dag og fann að ég hefði staðið það… harkan komin í fullan gang…. en svona er lífið breytilegt endalaust og þá er bara að takast á við það!!

 BBL með dauða tönn

 p.s. tönnin mín er ekki dauð vegna þess að Karíus hafi komist í hana…. heldur væntanlega vegna þess að ég fékk einu sinni verulegt högg á kjálkann…. (ekki í slagsmálum sko…. heldur í frekar hörkulegum fótboltaleik…. hver segir svo að íþróttir séu hollar tíhí)





Þarf algjörlega að taka á sjálfri mér

12 10 2007

Mér tókst ekki að eiga góðan matardag í gær.  Hugurinn er samt alveg til í að eiga góðan dag og ég hugsa það fram eftir öllum degi að nú verði þetta 100% dagur.  En svo klikkar eitthvað seinnipartinn og allt fer í rugl!!  En ég er samt sem áður ekki að gefast upp….. þetta tekst hjá mér í dag!!  Hef fulla trú á sjálfri mér og veit að þetta tekst….. og var að lesa markmiðin mín… 10 kg. fyrir 1 nóvember og það er mjög raunhæft ef ég næ mér á skrið á næstu dögum!!

Ég er búin að átta mig á því að “granna” ég þarf að hafa betur í rökræðunum við “feitu” mig!!  Feita ég segi bara við sjálfa mig…… vell þú ert búin að klúðra þessu og hvers vegna í veröldinni ættir þú þá að halda áfram í þessu matarprógrammi… ég meina það er hvort sem er allt ónýtt”…. “granna” ég segi…… þú gefst ekki upp stelpa….. þetta er bara smá niðursveifla sem er hægt að ná tökum á……. líttu á sjálfa þig og sjáðu… þú hefur ekkert þyngst þó þú hafir farið út af sporinu þannig að það er ekkert ónýtt neitt…. taktu þér nú tak og haltu áfram stelpa….!!  ÞArf að læra að hlusta betur á “grönnu” mig!!

Ég er auðvitað feit og þess vegna er ég að reyna að létta mig en ég finn að ég þarf að hugsa um framtíðina og hugsa mig granna líka….. vegna þess að það er ekkert óraunverulegt við það og ég get vel létt mig verulega…. mitt hjálpartæki er DDV og það virkar…. nú er bara að ná hausnum með aftur og þá smellur þetta og mér skal takast að ná 10 kg. fyrir 1. nóvember!!

Ég er líka að fara í karabískahafið í febrúar….. og þá er nú lágmarkið að geta verði í bikiníi án þess líða mega illa!!





:) how is it hanging

11 10 2007

Þessa dagana gengur mér ekki nógu vel og um leið minnka ég það að blogga.  Bloggið hjálpar manni samt sem áður og nú ætla ég að blogga á hverjum degi þar til dagarnir mínir eru orðnir 100% og rúmlega það:)

Ég dett alltaf úr góða gírnum þegar það er mikið álag á mér….. virðist ekki geta skipulag mataræðið þegar mikið er að gera en nú er að hægjast um og ég þarf að fara taka í rass***** á sjálfri mér.  Ég hef þó passa mig þannig að ég hef ekki þyngst en ég hef heldur ekki verið að léttast…… og þó það sé jákvætt að þyngjast ekki þá er það ekki markmiðið mitt….. markmiðið er að léttast…. ég þarf á því að halda til að lifa lífinu eins og ég vil!!  Stundum þyrfti maður að hafa svona hjálparhellur sem hægt er að hringja í þegar mar er við það að misstíga sig…. mikið væri það gott!!  En í dag ætla ég að eiga góðan ddv dag.  Undirbjó mig vel í gær og allt bendir til þess að þetta ætti að takast hjá mér!! 

Ég sé líka að þegar það er svona mikið að gera þá fer ég að drolla á kvöldin í staðinn fyrir að fara fyrr í bælið og vakna þá fyrr hress og kát og hafa þá orku til að fara t.d. út að ganga á morgnana eins og mér þykir svo gott.  Best að fara að vinna að því …… allt til að gera sálartetrið betur í stakk búið til að takast á við álagstíma og komast 100% frá þeim matarlega séð!!

 Já Sigríður Hjördís mér fannst líka rosalega gaman að hitta þig og var að lesa um rökræðurnar þínar við sjálfa þig….. jeminn…… þetta er eins og að þú hafir hljóðritað þetta úr mínu eigin höfði….. eins kaldhæðnislegt og það er þá er gott að sjá að ég er ekki ein um að “slást” við sjálfa mig!! 

BBL sér ljósið!!





Komin heim í heiðardalinn

29 09 2007

úff… hvað er gott að koma heim til sín!!

Var með einn guttann minn á sjúkrahúsi og mikið fannst okkur báðum gott að koma heim aftur:)

Ég fór í vigtun sl. miðvikudag í Gbæ og sagði vigtin þar að ég væri búin að léttast um 6 kg…. og þó ég væri sátt við 6 kg þá var ég samt ósátt því skv. því var ég búin að þyngjast um 3 kg…. og þó ég væri ekki búin að vera 100 % dönsk þá trúði ég ekki að ég væri búin að þyngjast um heil þrjú kg…. vitið þið að ég var alveg hundfúl við sjálfa mig….. þar til ég fann upp nýtt ráð…. og það var að vigta nýju gallabuxurnar og nýja beltið sem ég var með á mér….  og mikið var ég nú glöð þegar ég var búin að þessu því þetta saman voru rúmlega 3 kg…. ég ætlaði ekki að trúa þessu… að það væri svona mikil þyngd í fötunum … hreint ótrúlegt….. en að sama skapi  gott fyrir mig og ég fór með svona jákvæðara hugarfari á heimavigtina í morgun…. og ég er svo heppin að vera nákvæmlega jafnþung á henni eins og áður en ég fór suður…. hjúkkett fyrir mig að hafa ekki þyngst…. því ég var ekki skipulögð í mataræði…. og gat ekki alltaf sagt nei við óhollustu!!

Já ég fór á fundinn í Gbæ…. og mikið var ég feimin að fara á fundinn….. úff úff úff…… var alveg í barningi við sjálf mig að mæta á svæðið en lét mig hafa það…. og  ég var fegin þegar ég var búin að því….. þá verður þetta allt auðveldara næst þegar ég mæti eftir u.þ.b. 3 vikur:) og verð ekki í sömu gallabuxunum þá :)

En nú er bara verið að vinna í því að koma sér 100%  á danska aftur og gera áætlun um að fara ekki út af sporinu næst þegar ég þarf að fara í bæinn… þ.e. eftir þessar 3 vikur í eftirlit með peyjann!!





léttist “BARA” um 400 gr. þessa vikuna

19 09 2007

úff ein ekki sátt við sjálfa sig í augnablik í morgun…… ég léttist BARA um 400 grömm…. ógeðslega svekkt…. en það var bara í eitt augnablik….. og niður er niður!! 

Settist samt aðeins niður með matardagbókina fyrir framan mig og sé að ég hef verði að klikka algjörlega á að uppfylla allar skyldur!!  ÉG sem borða alltaf fisk….. minnst 4 daga í viku (þá bæði hádegi og kvöldmat þessa daga fiskur sem sagt 8x)…… borðaði bara fisk 2x….. hrikalegt….. ég sem fékk mér alltaf AB léttmjólk seint á kvöldin til að uppfylla mjólkurkvótann….. hef bara steingleymt því alla vikuna…. og algjörlega sleppt mjólkinni…… og asninn ég…. var einmitt að hugsa um það sl. viku hvers vegna ég væri alltaf svona svöng…. það væri ekki venjulegt þegar ég væri á Danska.  Sl. viku sofnaði ég hreinlega á verðinum….. og ég verð að passa mig betur í næstu viku…. enda ætla ég í vigtun í G-bæ á miðvikudaginn næsta!!

 BBL sátt við sjálfa sig!!





Er í barningi við sjálfa mig :)

17 09 2007

Er að berjast við sjálfa mig eftir feilspor helgarinnar.  Svona tilfinning…. “þar sem ég missteig mig hvort sem er þá er þetta allt ónýtt og ekki þess virði að halda áfram” :)   En ég berst af fullri hörku við sjálfa mig og hef haft betur hingað til og mun gera það áfram!! 

Helgin var fín fyrir utan þessa hnökra…… og ég reyni bara að einblína á það að ég ætla í vigtun í RVK í næstu viku og vill auðvitað vera sem léttust þá!!  Þá verða komnar 6 vikur á Danska og gaman að sjá hver ávinningurinn er!!  Ég hef trú á því að ég verði mjög nálægt því að vera 10 kg. léttari en ég var fyrir 6 vikum síðan:) allavega miða við stöðuna eins og hún er í dag:)  annars kemur þetta bara í ljós og ég er bara mjög ánægð með mig og léttinginn!!

BBL glöð með sjálfa sig!!





smá að misstíga mig

16 09 2007

Ég fór í veislu í gær….. alveg ákveðin í að standa mig……. hmmmmm en það gekk nú ekki eftir ennnnn mér til málsbóta þá hafði ég hemil á mér í veislunni og það sem skiptir mig reyndar meira máli…… að ég lét ekki eftir mér að fara í einhverja vitleysi restina á deginum:)  Hafði áhyggjur af því að ég gæfist upp þar sem ég hafði misstígið mig en ég tók á honum stóra mínum og kláraði daginn eins vel og hægt var!!  Ég var lengi vel að hugsa um að mæta ekki í veisluna þar sem ég veit að ég er veik fyrir í svona aðstæðum en ég gat ekki leyft mér að mæta ekki þannig að þrátt fyrir allt þá spilaðist ótrúlega vel úr þessu og ég er bara sátt í sjálfa mig í dag:)  Reyndi að velja skynsamlega af hlaðborðinu…… brauðtertu og gulrótarköku…. en endaði samt á því að borða sneið af alvöru bombu!!  já….. segi það bara aftur….. sátt við sjálfa mig þrátt fyrir allt þar sem ég lét þetta ekki slá mig algjörlega út af laginu!!





14. september mér þykir vænt um þennan dag:)

14 09 2007

Jámm þessi dagur er alltaf fallegur í mínum huga….. systir mín á afmæli í dag!!

Mér gengur mjög vel…. matarmálin í ótrúlega góðum gír og það eina sem truflar mig og það frekar lítið að mig langar eiginlega að fara á vigtina á hverjum degi til að sjá léttinginn:)  en auðvitað geri ég það ekki!!  Fötin mín eru orðin laus á mér og mér finnst frekar fyndið að það sést svo vel framan í mér og niður hálsinn og axlirnar að ég hafi grennst!!  og þá finnst mér sko skrítnast að sjá þetta svona á öxlunum:)  Allt jákvætt bara!!  Svo hlakkar mig til að fara í vigtun í bænum í viku 39, ætla að fara í hádeginu á miðvikudaginn!!  Það gengur allt eitthvað svo smurt að ég bara á ekki orð!!  alsæl með hlutina!!

Mér finnst líka ótrúlega gaman að fylgjast með ykkur átaksbloggurunum þarna úti……!! 





o happy days……

13 09 2007

já ég er svo ótrúlega glöð í hjartanu með sjálfa mig.  Langt síðan mér hefur litið svona vel með það sem ég er að gera….þ.e. það sem ég er að gera fyrir sjálfa mig….. Danskurinn!!  Það er einhvernveginn svona friður í mér…… algjörlega sátt við sjálfa mig…… stenst hverja freistinguna á fætur annarri…… og bara hreinlega hætt að taka eftir sumu sem hefði látið mig slefa fyrir mánuði síðan.  Þetta er kannski svolítið ruglingslegt en ég veit þið skiljið mig :)

Verð líka að monta mig aðeins af manninum mínum…. en hann vakti mig í morgun alveg syngjandi glaður enda sagði vigtin honum að hann væri orðin 10 kg. léttari en hann var þegar við byrjum 15. ágúst sl.  Flottur árangur hjá honum.

 Bumbuskvísa spurði mig í kommenti hver væri galdurinn og hvort ég væri að borða mikinn feitan fisk og já ég held það sé hluti af galdrinum að borða fisk….. ekki bara feitan fisk heldur bara fisk yfir höfuð.  Ég hef greiðan aðgang að ferskum fisk og borða hann örugglega í u.þ.b. helmingi máltíða vikunnar og þar af er c.a. helmingur feitur fiskur:)  þ.e. minnst 8 fiskimáltíða og lágmark 4x feitur fiskur (lax, silungur, steinbítur, lúða).  Þannig að fiskur er lykillinn fyrir mig væntanlega:)