Markmiðið er 40 kg…. eftir þessi 40 kg ætla ég að stoppa við og sjá til hvort ég má taka af mér 4-5 kg í viðbót við það….. er ekki viss um það þar sem ég er hávaxin og stórbeinótt en þetta er gott markmið og þetta ætla ég að klára á 34,64 vikum:) þ.e. ég ætla að verða orðin flott í laginu áður en ég verð 40 ára í vor!! Þetta er stóra loka markmiðið….. því skipti ég niður í nokkur minni markmið svo þetta virðist ekki eins óyfirstíganlegt:) Svona skiptist þetta niður.
1. ná 5 kg á fyrsta mánuði (náðist á 2 vikum tíhí þ.e. 29. ágústi 2007)
2. ná 10 kg fyrir 1. nóvember
3. ná 15. kg fyrir jól
4. ná 20 kg fyrir lok janúar (hér ætla ég líka að byrja í ræktinni ef ég er ekki byrjuð áður)
5. ná 25. kg fyrir lok febrúar
6. ná 30. kg fyrir miðjan apríl
7. ná 35. kg fyrir maí lok
8. ná 40 kg markmiðinu fyrir 15. júlí
Til að ná þessum markmiðum mínum ætla ég að fara 100% eftir Danska og eina undantekningin í þessu ferli verður aðfangadagur þá ætla ég að borða það sem í boði verður en bara í hófi. Einnig ætla ég að vera dugleg að hreyfa mig þ.e. fara í göngutúra og fara í sund og byrja í síðasta lagi í ræktinni í janúar, gæti samt trúað að ég yrði byrjuð fljótlega en þetta er allavega planið, ég þarf nefnilega að huga að hnjánum og að leggja ekki of mikið á þau meðan ég er svona þung!!