Þarf ég nokkuð að segja frá því að dagarnir fara alltaf í einhverja vitleysu hjá mér…… þarf ég nokkuð að segja frá því hvað ég er misheppnuð……. eða….. þarf ég nokkuð að vera svona vond við sjálfa mig og finnast ég mesti lúser í veröldinni
Niebb….. ætla ekki að gera þetta síðasta….. mér eru bara að mistakast dagarnir en ég er ennþá mjög ákveðin í að ná stjórninni…… og hef trú á því að hverjum einasta degi….. að í dag sé rétti dagurinn og ég veit að það verður!! Ég er ekki í einhverju mega-sukki….. en samt ekki alveg 100% í hollu fæði….. léttist samt örlítið….. og kannski á það sinn þátt í því að þetta gengur ekki nógu vel….. er samt að léttast þó það sé ekki mikið….. .mig vantar bara herslumunin til að fylla upp í 10 kílóin….. og ég skal gera það fyrir mánaðarmót:) þannig að …. 100% dagur í dag!! og til vara eins og lögmennirnir…… þá allavega ekkert óhollt og frekar aukaepli eða brauðsneið…. bara ekkert sem inniheldur sykur!!! aht… klukkan er um 2 og flottur dagur hingað til
BBL ótrúlega bjartsýn á sjálfa sig