Ég er svo “heppin” að dagurinn í gær færði mér á silfurfati, brauð með reyktum laxi, allskonar vínarbrauð og kruðerí…… og hvað gerði ég …. nú auðvitað fékk mér eftir að hafa verið búin að neíta mér um þetta í alllanga stund!! Ég var að rita fund sem stóð í 3 klukkustundir og þegar kom að kvöldmatartíma þá stóðst ég ekki mátið lengur og fékk mér brauð sem var nú kannski í lagi…….. þangað til ég fékk mér sætindi!! oooo hvað ég var skvekkt við sjálfa mig!! en….. gert er gert…….. og ég ætla ekki að eiga það við sjálfa mig lengur heldur bara eiga 100% dag í dag fimmtudaginn 18. október!!
í morgunmat fékk ég mér 1 epli svo verður brauðið tekið í 10 kaffinu…… finnst það gáfulegra vegna þess að í 10 kaffinu eru allir ða borða fyrir framan mig og þá á ég stundum í vandræðum og því geymi ég morgunmatinn fram að þeim tíma:) Allt gert til að standast dagana eins vel og hægt er !!
Mitt eigið sjálf er nánast læknað eftir ruddalækninn, langaði bara að skrifa þetta í gær þar sem hugurinn minn skynjaði hluta þess sársauka sem sumt fólk lendir í. Þrátt fyrir þetta þá mæti ég aftur í krabbóskoðun að tveimur árum liðnum með bros á vör og vona bara að ég lendi ekki á sama lækninum:) Mér finnst ég ekki hafa leyfi til að sleppa þessum heimsóknum því þá gæti ég einfaldlega verið að stytta líf mitt með trassaskap og minnka möguleikana á að vera með börnunum mínum eins lengi og hægt er:) Þannig að…………Sigríður…… pantaðu þér tíma ekki seinna en í dag!!
BBL bjartsýn í morgunsárið!!
já mamma