enn og aftur

8 11 2010

er að hugsa um að koma mér í gírinn… orðin alltof þung aftur!!  Þetta er fyrsta skrefið í þeirri baráttu:) að skrifa hér og hugsa þetta vandlega!!





Góóóðar Stuuundir…lalalalalalalalala

29 11 2007

:) Auglýsing glymur í hausnum á mér!! 

Hef það fínt….. búin að eiga tvo 100% danska daga og einn næstum góðan eða svona 99% dag þar sem þó fór ekkert óhollt inn fyrir mínar varir bara aðeins of mikið brauð og pínku of lítið grænmeti og prótein…. og átti það við um kvöldmatinn!!  Ég er sátt við sjálfa mig því ég stóðst freistingar í gærkveldi með stæl….. pirraði mig ekki einu sinni að standa frammi fyrir freistingum…. baráttuþrekið í hámarki.

Jú líður að jólum og mar fer bara að verða spenntur.  Stefni á að húsið verði farið að ljóma um helgina.  Allir gluggar fylltir af jólaljósum og kerti út um allt….. og auðvitað þrífa gluggana, sjæna og pússa:)  ó ég hlakka svo til…. ég hlakka alltaf svo til. 

BBL í extra góðu skapi……. kannski bara jólaskapi!!





I ammmmm back

26 11 2007

já… vonast til að vera komin aftur í gírinn…. .búin að ná 100% degi í dag og að hefur ekki gerst í hálfa herrans öld held ég.

Það er svona léttara yfir mér í dag ….. þ.e. að er eitthvað allt eitthvað svona skýrara í hausnum á mér, vona bara að það haldist svona áfram.

Henti þeirri spurningu fram um daginn á síðunni 7danskir dagar hvað væri til ráða þegar mar færi í einhver átkost og fékk góð svör…….það verður hver að finna það út fyrir sjálfan sig:) held að það sé rétt……. maður þarf að vinna með sjálfan sig og læra að þekkja sínar takmarkanir og hvað mar þolir og hvað ekki!! 

BBL í þungum þömkum…. tíhí…. ÞUNGUM þönkum :)





komin heim aftur….

22 11 2007

ótrúlega þreytt en sæl eftir ferð til Barcelona.

 Mataræðið tekið í gegn frá og með morgundeginum og þá ætla ég að ná 100% viku!! en samt byrja bara á einum 100% degi það er góð byrjun og svo kemur annar og annar þar til það er alltí einu komin vika.

BBL klár í að taka á hlutunum!!





jebs… ég er hér….. :)

13 11 2007

Er hér og….. ekki alveg á nógu góðu matarróli en ekki heldur orðin uppgefin á sjálfri mér og er það vel….. rembist eins og rjúpa við staur…. að reyna að ná tökum á sjálfri mér…. suma daga tekst það vel…. aðra ekki eins vel……. en það gerist bráðum:)

 Er á leið til útlanda í nokkra daga…. og held bara að mig sé örlítið farið að hlakka til… fer eftir 3 daga!!  Er reyndar svo flughrædd að ég þarf að beita verulegum rökum til að róa sjálfa mig:)

BBL á leið út í heim





Fersk í sólinni

5 11 2007

Eftir erfiða vinnu og skemmtanna helgi þá er ég til í slaginn!!  Nú skal sá danski tekinn með trompi í dag….. !!

 BBL þrjósk sem naut!!





Út í sól og sumaryl þá er gott að vera til

2 11 2007

Hér er að vísu sól…. en ekki sumarylur það er nú alveg ljós:) 

Mér er ekki að ganga vel þessa dagana….. er eitthvað leið og löt og uppgefin á sjálfri mér…… en örvæntið ekki….. ég er samt ekki að gefast upp og er að vinna í sjálfri mér á fullu…… skil bara ekki hvers vegna þetta gengur ekki betur þar sem ég hef fullan hug á að standa mig vel….. og mig langar virkilega að léttast og verða svolítið flott í laginu:)  Ekki það þegar mar er búin að horfa á “How to look good naked” þá sér maður að allar konur eru flottar í laginu bara spurning um að nota fötin til að laða fram það besta í fari hverrar og einnar!!  en mig langar þá samt að verða aðeins flottari:) 

ÉG get ÉG skal ÉG ætla…… þó það kosti blóð, svita og tár.  Ég ætla að ná tökum á sjálfri mér!! Trúi ekki öðru en að mér takist það þó leiðin geti verið grýtt!!

 BBL sem trúir enn á sjálfa sig :)








Follow

Get every new post delivered to your Inbox.